#

Vetrarbraut 2-4Garðabær

Vetrarbraut 2–4 samanstanda af tveimur fjögurra hæða fjölbýlishúsum í Garðabæ, byggðum í randbyggð í kringum sameiginlegan innigarð. Í byggingunum eru alls 72 íbúðir af ólíkum stærðum sem skiptast á sex stigahús. Aðkoma að stigahúsum er á 1. hæð frá sameiginlegum garði, en þau sem snúa að Vetrarbraut hafa einnig inngang frá götu.

Undir lóðinni er tveggja hæða bílakjallari sem húsin deila, þar sem einnig er að finna geymslur, hjólageymslur og stoðrými. Húsin eru klædd í jarðlitum sem gefa þeim hlýlegt og skemmtilegt yfirbragð.