#

Áshamrar 50Hafnafjörður

Áshamrar 50 er fjöleignahús með verslunarhúsnæði á jarðhæð og fjórum íbúðarhæðum með samtals 40 íbúðum. Húsið skiptist í tvö stigahús með lyftum og aðkomu frá jarðhæð, en aðgengi að inngangsdyrum allra íbúða er um svalaganga. Undir byggingunni er bílakjallari ásamt stoðrýmum og geymslum.

Á jarðhæð eru einnig hjóla- og vagnageymslur sem og verslunarrými. Byggingin er L-laga og myndar skjólgott útisvæði sem snýr til vesturs og suðurs, með sameiginlegum garði fyrir íbúa.