#

GrímsgataGarðabær

Grímsgata 2–4 er fimm hæða fjölbýlishús með samtals 33 íbúðum. Byggingin skiptist í tvö stigahús sem eru samtengd um bílakjallara og stoðrými á jarðhæð.

Jarðhæð bygginganna er að hluta niðurgrafin í landið og á þeirri hæð eru tvær íbúðir, ein við hvorn enda byggingarinnar.

Íbúar á fyrstu og annarri hæð hafa beinan aðgang að garðinum og sérafnot af veröndum sem afmarkaðar eru með lágum skjólveggjum.