#

Arion Banki og VörðurReykjanesbær

Arion banki og Vörður opnuðu nýtt útibú í þjónustukjarna á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Krossmóa flyst í sameiginlegt húsnæði með Arion banka sem stendur við Aðalgötu 64. Aðgengi við Aðaltorg er einstaklega gott beint frá Reykjanesbraut og næg bílastæði verða fyrir utan útibúið. Litaval í rýminu er sótt í liti vörumerkisins sem falla vel að hnotuviði. Loft og gólf eru samræmd um allt húsið, með örlitlum blæbrigðamun á litum. Rýmið er hlýlegt og aðlagandi og er hannað þannig að það taki vel á móti gestum.