Skrifstofuhúsnæði Heimilistækja og Ásbjörns ÓlafssonarReykjavík
Við sameiningu skrifstofuhúsnæðis Heimilistækja og Ásbjörns Ólafssonar var áhersla lögð á að skapa heildstæða ásýnd sem tengir saman ólíka litaheima fyrirtækjanna. Mildur grænn og bleikur litatónn varð fyrir valinu og gefur rýmunum hlýlegt og notalegt yfirbragð.
Góð hljóðvist var einnig mikilvægur þáttur í hönnuninni. Veggir voru klæddir hljóðdempandi einingum og gólf teppalögð til að draga úr hávaða og skapa þægilegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk. Litir, efnisval og hljóðvist vinna þannig saman að því að skapa hlýlegt og aðlaðandi skrifstofuumhverfi.