Axlarás 50-66Hafnafjörður
Axlarás 50-66 eru tvær raðhúsalengjur í austurhluta Áslandi, með víðáttumiklu útsýni til norðurs og austurs. Lengjurnar samanstanda af sex og sjö húsum með aðkomu frá Axlarás um sameiginlegan botnlanga.
Allar íbúðareiningarnar eru á tveimur hæðum, með aðalinngang frá götu á efri hæð. Hver eining hefur sérafnot af garðsvæði bæði framan og aftan við húsið, auk skjólveggja sitt hvoru megin.
Við byggingu húsanna voru eingöngu notuð byggingarefni sem eru vottuð eða uppfylla kröfur byggingarreglugerðar og íslenskra staðla. Svæðið nýtur jafnframt mikillar nálægðar við náttúru, leiksvæði og skóla.