Urriðaholtstræti 9-15Garðabær
Urriðaholtsstræti 9-15 er fjölbýlishús sem samanstendur af fjórum 5 hæða byggingum með 20 íbúðum í hverju stigahúsi. Aðkoma er að hverjum stigagangi á fyrstu hæð og tengjast byggingarnar jafnframt með hálfniðurgröfnum kjallara. Í kjallaranum eru íbúðir, geymslur, stoðrými, bílageymsla, sameiginleg hjólageymsla og glæsilegt miðrými sem er sameiginlegt fyrir alla íbúa og rekið af sameiginlegu húsfélagi. Miðrýmið býður upp á fjölbreytta aðstöðu, þar á meðal setustofu með eldhúsi, golfhermi, billjarðaðstöðu, fjölnota fundar- og samkomurými ásamt æfingasal.
Ytra útlit bygginganna einkennist af þremur mismunandi brúnum litbrigðum sem falla vel að umhverfi svæðisins. Staðsetningin er einstök, þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði og golfvelli. Íbúðirnar henta því einstaklega vel þeim sem vilja njóta nútímalegra þæginda, vandaðrar hönnunar og heilsueflandi lífsstíls í návígi við náttúruna.