Tannlæknastofa á AðaltorgiKeflavík
Aðalbros í Keflavík er sameiginleg tannlæknastofa tíu tannlækna auk tannsmiðs. Stofan er L-laga og umlykur aflokaðan þakgarð sem nýtist til hvíldar og samveru, auk þess að hleypa birtu inn í rýmin. Við hönnunina var lögð áhersla á notalegt og róandi andrúmsloft sem endurspeglast í vönduðu efnisvali, þar sem ljós eik, náttúrusteinn og náttúrulegar hljóðvistarplötur úr trétrefjum í lofti eru í fyrirrúmi. Meðfram ganginum að aðgerðarrýmunum eru háir eikarskápar sem gefa rýminu dýpt og hlýju, ásamt því að tryggja starfsfólkinu ríflegt geymslupláss. Glerrennihurðir á milli skápanna veita aðgengi að stofunum og hleypa dagsbirtu á ganginn.